Ég þarf að fara að taka mig alvarlega á í þessu bloggdæmi hérna. X1 í viku er ekki nógu gott. Sl. ein og hálf vika hefur verið frábrugðin öðrum vikum hjá mér. Þetta er búin að vera alveg yndislegur tími, hef rúntað mikið, djammað, hitt skemmtilega vini sem ég ætla pottþétt að rækta betur sambandið við og bara notið þess að vera ég.
Núna hefur samt alvaran tekið aftur við. Skólinn, vinnan og fjölskyldan, en ég sé það að það er nauðsynlegt að taka svona viku öðru hvoru, bara til þess að finna sjálfan sig. Já og fréttir það eru 2 kg. farin, bara við það að breyta matarræðinu. Ég hef verið léleg í ræktinni, en vonandi get ég mætt á morgun. Held samt að ég sé að verða lasin
Verð hér aftur fljótlega. Já og eitt að lokum, þið sem lesið, plíííssss skrifið í gestabókina eða commentið, það er svo gaman að sjá hverjir fylgist með mér. Kveð í bili Solla í eigin hugarheimi........
Myndaalbúm
Nóv. 2024 | ||||||
S | M | Þ | M | F | F | L |
---|---|---|---|---|---|---|
1 | 2 | |||||
3 | 4 | 5 | 6 | 7 | 8 | 9 |
10 | 11 | 12 | 13 | 14 | 15 | 16 |
17 | 18 | 19 | 20 | 21 | 22 | 23 |
24 | 25 | 26 | 27 | 28 | 29 | 30 |
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ sæta skvísa. Ég er alltaf hérna kona. Ég er að fara til útlanda ekki á morgun heldur hiiiiiiinnnnnn. Jibbbbííííí.......... Verðum að taka annað djamm í bráð, ég meina, nú er djammtími lífs míns, en ekki hvað......
Þegar ég er flutt ætla ég að halda partý fyrir okkur 12-E skvísurnar, er þaggi málið???
Guðrún 12-E 17.10.2007 kl. 00:51
Ég held að þú hafir nú alveg nóg að gera, en þetta kemur allt hjá þér stelpa, þú ert stórglæsileg og það var gaman að sjá þig aftur eftir langan tíma..
Aron 17.10.2007 kl. 10:17
Já Guðrún mín það er sko frábært að vita að þú fylgist með kellunni Sammála hérna, ég held að ég sé í djammtíma lífsins, er allavegana alltaf til í slíkt.
Aron minn, rosalega var gaman að hitta þig. Þú ert alltaf jafn mikill sjarmör. Við þurfum að drífa okkur í að finna tíma fyrir jólahlaðborðið
Solla 17.10.2007 kl. 11:23
Þetta er allt spurning um tíma, sem við fynnum
Aron 17.10.2007 kl. 12:54
Ætluðum við ekki alltaf á kaffihús kæra mín? :)
Kveðja Inda
Inda 19.10.2007 kl. 17:16
Hæ sæta
Maður getur nú ekki annað en fylgst með þér
Hjalli 19.10.2007 kl. 18:12
Inda mín, segðu til og ég mæti. Bíddu ertu komin frá Köben? Já og hvaða hrakfallavesen er á þér?? SUSSS...
Hjalli minn, þú verður nú að fylgjast með mér annað væri dónaskapur
Solla 20.10.2007 kl. 01:31
Það er nú bara þannig með þig Solla mín að þú ert alltaf að lifa þessu blessaða lífi okkar lifandi og gott betur, ef það er einhver í kringum þig sem er ekki á sömu nótum þá barasta hristirðu upp í þeim lífið - hefur alla vegana gert það hingað til og ég er alveg viss um að það sé ekkert að fara að breytast
Ég veit um fáa orkubolta eins og þig og ef það eru fleiri þarna úti eins og þú þá vill ég þekkja þær allar
Konni Nonni 21.10.2007 kl. 07:26
Æi takk Konni minn, þú færð mig alltaf til að brosa og hlæja og án þess vil ég aldrei vera Það er bara svo gaman af lífinu.
Solla 21.10.2007 kl. 12:28
Já, ég er komin frá DK :)
Heyrðu ....ég braut á mér fingurinn í vinnunni og gáfnaljósin á slysó settu mig ekki í gips strax eins og þeir áttu að gera sem varð til þess að brotið byrjaði að síga og nú er ég á leiðinni í aðgerð á morgun útaf þessu.
Reynum að hittast í vikunni:)
Kveðja Inda
Inda 21.10.2007 kl. 17:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.