Próf, próf og aftur próf

Ég á mér nánast ekkert líf. Sl. föstudag tók ég próf kl. 15 (fékk 8,5 í því) Wink og þegar það var búið var rokið upp í sveit með skólanum hennar Karenar í brjáluðum kulda og roki til að ná í jólatré. Svo kl. 20 var ég mætt á kvöldvakt og var til rúmlega miðnættis. Næstu 5 daga á eftir eða þar til í gær hef ég verið á morgunvöktum, sem sagt 6 vaktir í röð og er það slatti. En eitthvað verður maður að gera því deildin var nánast starfsmannalaus vegna veikinda og þá reddar maður. Svo var lært fram yfir miðnætti í gær. Þegar ég vaknaði í morgun leið mér eins og eftir stórt fyllerí og hélt ég áfram að sofa til hádegis, þá fyrst skreið ég á fætur.

Núna er ég að hressast og get því byrjað aftur að læra. Félagslífið mitt er í mínus, það er svo slapt. Sem sagt þokkalega dautt hér á bæ fyrir utan skólann og vinnuna Gasp En þetta breytist e. 17.des. Þá fer ég undan feldinum og meðal fólks aftur. En verð víst að fara að sofa núna, kveð í bili Solla nörd Woundering


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

já kannast við þetta Solla mín hahaha einhverra hluta vegna er ég eingöngu á mv þennan mánuðinn hahahaha

Guðrún 12.E 11.12.2007 kl. 16:12

2 identicon

Hæ pæja

fínar myndir úr þessu bara fína partý ;)

Gangi þér vel að læra fyrir prófið,þu stendur þig vel :) svo styttist í jólin GAMAN GAMAN. 

Hlakka til að sjá þig á laugardagskvöldið í DVD og smá slúður með því  :p

Helena 12.12.2007 kl. 19:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband