Rólegheit

Vitiði vikurnar eru svo fljótar að líða að ef ég passa mig ekki að blogga reglulega gleymi ég hvað ég hef verið að gera Blush En það sem ég man er að helgin sem var að líða, var ROSALEGA róleg. Ég lærði með 2 konum úr skólanum á laugardaginn og var farin að sofa fyrir miðnætti það kvöld og föstudaginn og sunnudaginn notaði ég til að drösla gríslingunum með mér í heimsókn til ættingja. Já frekar rólegt líf. Fór reyndar í gymið laugard. og sunnud. en frí í dag. Sú stutta var nefnilega í fríi frá skólanum og við vorum að mæðgast saman Smile En ég á sko eftir að taka rólegheitin út, því næstu helgi er ég ekki bara að fara í vinnudjamm, heldur fer ég á laugardeginum í partý upp á Skaganum. Hef aldrei djammað þar og því tími til kominn að prófa það.

Jæja gott í bili en þangað til næst, verið góð við hvort annað. Kveðja Solla súperspekingur W00t


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já á eftir að taka skagan með trompi, eru allir aðrir bænir búnir að fá Sollu hehe

Aron 2.10.2007 kl. 10:31

2 identicon

Hæ skvís ...

Til hverns ertu að fara í vinnupartý upp á Skaga?

Veit nefninlega um eina hjúkku sem vinnur í bænum en býr upp á Skaga:)

Kveðja Inda.

Ps ...hvenær viltu koma með mér í ræktina??

Inda 2.10.2007 kl. 17:24

3 identicon

Já Aron minn allir bæir búnir að fá mig

Nei vinnupartýið er á föstudaginn en bara venjulegt partý á laugardaginn  heyrðu ég er búin að vera dugleg í ræktinni en sé þig aldrei. Reyndar þarf ég að taka matarræðið í gegn sukka enn of mikið

Solla 2.10.2007 kl. 21:58

4 identicon

Heyrðu gæskan ...ég er alltaf þarna um 8:30 á morgnanna.

Kveðja Inda

Inda 2.10.2007 kl. 23:16

5 identicon

Uss þetta er svakalegt

Aron 3.10.2007 kl. 11:29

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband