Sódóma Akranes :-)

Jæja maður verður víst að hella úr sér hérna.

Síðasta helgi var algjör snilld. Hef reyndar ekki upplifað svona skemmtilega helgi í ógó mörg ár. Eins og flestir lesendur mínir vita voru 2 partý á föstud. Ég og Anna sjúkraliði hittumst heima hjá mér og byrjuðum að sötra kl.17 Cool Fjóla systir kom og skuttlaði okkur í fyrra partýið. Þar var meðalaldurinn 40+ þannig að ég stoppaði c.a 2 klst. en náði samt að slúðra og knúsa þær sem ég sakna af deildinni. Svo kom Fjóla systir aftur og skutlaði mér í hitt partýið, Fjóla þú ert æði takk elskan. Þar var ég til c.a 3 um nóttina. Vá hvað það var gaman, mikið hlegið, myndavélin var misnotuð og svo tókum við Gunna vinnupæja okkur til og sungum snildar vel í singstar (Material girl).

Laugardagurinn byrjaði með smá hausverk, en hann jafnaði sig eftir sukkfæði a la Aktu Taktu. Um kl.17 hélt ég af stað og náði í Konna vin minn og Unu og við brunuðum upp á Skaga. Fyrrihluti kvöldsins var grín í boði Sollu (not) þar sem 2-3 aðilum tókst að skjóta á mig eins og í versta stríði. Þeir komust nefnilega að því að ég er ROSALEGA saklaus stelpa  Whistling Um nóttina var haldið af stað í Mörkina sem er pöbb, skemmti mér konunglega. Eftir lokun var eftirpartý og sofnaði liðið ekki fyrr en undir morgun, algjör menntaskólafýlingur. Nota bene það var sofið í öllum herbergjum nema baðinu. Ég vakti náttúrulega alla um kl.10 því mér leiddist, rosa vinsæl. En svo seinni partinn þá lagði ég mig hjá Konna og Rúnari, algjör snilld FootinMouth 

Svona helgi kemur pottþétt ekki á næstunni í mínu lífi. Enn smá þreytt eftir hana en jafnframt mjög ánægð. Kveð að sinni, Solla partýdýr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Já þú kannt að skemmta þér, og svo endaðiru á milli tveggja stráka.... mmmmmm Solla þú ert alltaf að koma á óvart.....

Aron 12.10.2007 kl. 09:08

2 identicon

Já ég er sem sagt annar af þeim sem sváfu hjá Sollu og fyrir ykkur hina karl púngana þarna úti sem eruð að velta Sollu fyrir ykkur þá eruð þið ekki að missa af neinu

Konni Nonni 14.10.2007 kl. 21:55

3 identicon

Konni minn þú ert nú að gera frekar lítið úr henni með þessum orðum...

Aron 15.10.2007 kl. 09:12

4 Smámynd: Solla hjukka

Aron minn, takk fyrir kommentin þú ert og verður alltaf molinn minn.

Konni greyið er bara sár yfir því að ég sé alltaf að neita honum, uss greyið litla.

Solla hjukka, 15.10.2007 kl. 19:01

5 identicon

Veistu að mér langar að segja smá núna, en ég held að ég sleppi því ....

Aron 16.10.2007 kl. 12:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband